Síðasti leikurinn á tímabilinu fór fram í blíðskaparveðri á Klövermarken. Reyndar eru það smá ýkjur það var skítkalt en við hristum það af okkur. Þessi leikur var bara formsatriði þar sem við vorum búnir að vinna deildina en engu að síður mættum við vel mótiveraðir til leiks, ákveðnir í að vinna, enda var leikurinn á móti liðinu í öðru sæti. Það var því ekki spurning að við vildum vinna til að sýna að við erum LANGBESTIR.
Við byrjuðum að hita upp klukkutíma fyrir leik(allt Eika að kenna), tókum hlaup, teygjur og reit og fengum hita í kroppinn. Flóðljósin voru tendruð og dómarinn flautaði leikinn á kl 18.25 stundvíslega. Liðin þreifuðu fyrir sér og skiptust á að skora. Þeir settu eitt á meðan vörnin var að stilla sig saman. Dagur jafnaði fljótlega eftir gott samspil þar sem Baldvin tók hælsendingu á Dag. Stuttu síðar skoraði Oddur glæsilegt mark sem var mark nr. 100 hjá FC Island á þessu tímabili. Oddur var svo góður að gefa mér(Ingva) markið þannig að ég á mark nr. 100 og er orðinn markahærri en Laddi. TAKK Oddur. Eftir þetta náðu þeir að jafna í 2-2 en þá sögðum við stopp. Vörnin hélt eftir það og við settum tvö í viðbót. Eða réttara sagt Oddur setti tvö í viðbót og hattrickið komið í hús.
Lokaniðurstaðan 4-2 fyrir FC Island, við ósigraðir síðan í fyrsta leik. Eitt tap á tímabilinu, tvö jafntefli og 19 sigrar. 102 mörk á tímabilinu sem gerir ca. 4,64 mörk að meðaltali í leik. Glæsilegur árangur og megum við vera stoltir af okkur.
Þá er það bara lokahóf á laugardaginn þar sem ölið verður teygað, limrur kveðnar og fagrir kroppar beraðir eins og enginn sé morgundagurinn.
Ég vill enda á að þakka fyrir gott tímabil, þetta er búið að
vera yndislegt, alveg yndislegt.
Ingvi fyrirliði

Enn einn morgunleikurinn fór fram í gærmorgun á Valbyvöllum. Þrátt fyrir snemmheitin þá voru menn ferskir og klárir í leikinn enda í fyrsta skipti í sumar sem hent var í sameiginlega upphitun og teygjuhring. Menn voru greinilega á tánum gagnvart Jydunum sem höfðu boðið upp á hörku leik í fyrri umferðinni sem endaði með naumum 3-2 sigri Guðrúnarmanna. Þegar leikurinn hófst var fátt sem gaf til kynna annað en að svipað yrði uppá teningnum í seinni leiknum...
Fyrri hálfleikur einkenndist af stöðubaráttu og þéttum varnarleik. Addi og Laddi stóðu sína plikt með prýði í Guðrúnarvörninni með firnasterkan Ingva í markinu fyrir aftan sig, hleyptu engu í gegn. Guðrúnarmenn sóttu heldur meira og komust verðskuldað yfir eftir aukaspyrnu frá Degi úti á miðjum velli. Hann sendi fastan bolta inn í teiginn sem Jydarnir náðu ekki að hreinsa í burtu og Jói var mættur til að refsa þeim fyrir seinaganginn. Hann var svo aftur á ferðinni stuttu síðar þegar hann fær boltann, leikur á varnarmann og smellir svo boltanum framhjá markverðinum, hittir stöngina, yfir í hina stöngina og þaðan í netið. Þannig stóðu svo leikar í hálfleik...
Síðari hálfleikur hófst svo fjörlega þegar Jyda markvörðurinn ákvað að senda boltann beint í fæturnar á Degi sem þakkaði fyrir sig með marki. Jydarnir náðu þó að klóra í bakkann með marki skömmu eftir það en Dagur svaraði að bragði og kom stöðunni í 4-1. Þá urðu ákveðin kaflaskil í leiknum. Jydarnir eiginlega gáfust upp og Guðrúnarmenn gengu á lagið. Jói bætti við fimmta markinu, Baldvin því sjötta og sjöunda. Gummi Holm skoraði svo sláin inn áður en Baldvin fullkomnaði þrennuna sína. Gummi Þór skoraði tíunda markið og það ellefta skoraði gamli framherjinn Laddi sem sýndi og sannaði af hverju hann var einu sinni sannkallaður markvarðahrellir (en er það klárlega ekki lengur). Gummi Þór setti svo punktinn yfir i-ið með tólfta markinu en þegar þá var komið sögu hafði einn Jydinn hreinlega labbað af velli í vonleysinu. Jydarnir voru svo sennilega manna fegnastir þegar dómarinn flautaði leikinn af, niðurlægingin algjör...
Maður leiksins: Eiginlega bara allir, sterk vörnin stóð fyrir sínu í fyrri hálfleik og Ingvi varði það sem þurfti. Miðjan og sóknin með sífellda pressu á Danina og sköpuðu verðskuldaða forystu sem skóp sigurinn. Svo var seinni hálfleikur bara sýning sem allir tóku þátt í! :D
Síðbúinn leikjapistill fyrir leik sem var langt frá því að vera síðbúinn. Á þriðjudaginn var öttu kempurnar í Guðrúnu kappi við Bosníu-Serbana í FC Bosna. Búist var við hörku leik þrátt fyrir að síðasta viðureign þessara liða hafi verið nokkuð einhliða enda Bosníu-Arabarnir með eindæmum blóðheitir. Leikurinn hófst MJÖG stundvíslega klukkan 16:57 enda var fýldur dómarinn í engu stuði til að bíða eftir neinum...
Það var ljóst að þrátt fyrir söltun í fyrri leiknum yrði það sama ekki uppi á teningnum í þessum leik. Bosníu-Mongólarnir miklu frískari en síðast og sköpuðu sér nokkur ákjósanleg tækifæri. Hinu megin gekk erfiðlega að finna netið auk þess sem stangirnar og þversláin sáu um að halda boltanum frá netinu. Það voru svo Bosníu-Svíarnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins eftir glæsilegt sjálfsmark Baldvins, klárlega hans lang fallegasta mark í sumar. Þannig stóðu leikar svo í hálfleik...
Í síðari hálfleik var ákveðið að blása til sóknar og leikurinn snérist gjörsamlega Guðrúnarmönnum í vil. Hver stórsóknin rak aðra og Bosníu-Danirnir áttu fullt í fangi með að verjast árásunum. Eftir langa mæðu tókst svo Jóa Ben að jafna leikana með góðri afgreiðslu eftir sendingu frá 'leynigestinum' Adda Braga sem var sérstaklega flogið til Danmerkur til að taka þátt í leiknum. Jói fiskaði stuttu síðar vítaspyrnu sem Addi Braga tók og klíndi í netið, gjörsamlega óverjandi fyrir Bosníu-Tyrkjann í markinu. Þrátt fyrir fleiri góðar sóknir urðu mörkin ekki fleiri og sanngjarn en jafnframt erfiður sigur staðreynd...
Maður leiksins: Addi Braga, stoðsending og sigurmarkið, gerist varla mikið betra. Dómarinn fær svo prik fyrir góðan pirring... ;)
Það var allt annað lið en í síðasta leik sem mætti í leikinn eldsnemma í morgun á Klaufamörkum. Og þegar ég segi allt annað lið á ég ekki við einstaklingana sem skipuðu það heldur á þá frekar við baráttuna og keppnisskapið sem var hlaupið, heppilega, í menn. Oft er nefnilega gott að reka sig pínulítið á, það hvetur menn bara til dáða. Það var líka aldeilis raunin í dag...
Strax frá fyrstu mínútu var ljóst í hvað stefndi. Þétt vörn Guðrúnarmanna stóð vaktina vel og hleypti fáu í gegn og það litla sem slapp í gegn (mest skot langt fyrir utan) var ekki nálægt markinu eða auðveld 'bráð' fyrir Pétur sem tók að sér að spenna á sig markmannshanskana. Fyrsta markið leit svo dagsins ljós snemma í leiknum. Jói vann aukaspyrna á vinstri kantinum sem Dagur tók. Hann var ekkert að tvínóna við hlutina og smellti boltanum bara beint í netið úr aukaspyrnunni. Fljótlega eftir það bættu Guðrúnarmenn svo við öðru marki eftir glæsilegt 'samspil'. Dagur tekur þá skot sem Baldvin nær að þvælast fyrir en frákastið dettur beint fyrir Jóa sem smellir boltanum í netið. Stuttu síðar vinnur svo Reynir boltann þegar Ísbjörninn reynir að hreinsa, sendir á Tása sem sendir boltann á Dag sem lúrði fyrir utan teiginn. Dagur var ekkert að hafa þetta flókið, smellti boltanum hárfínt og bylmingsfast í stöngina og inn og þannig stóðu svo leikar í hálfleik, verðskulduð 3-0 forysta Guðrúnarmanna...
Í síðari hálfleik var meira af því sama. Reynir fær boltann í vörninni og finnur Dag á miðjunni. Hann leikur á tvo og sendir svo hárfínt út til vinstri á Tása sem smellir boltanum í fyrsta upp í samskeytin á marki Ísbirninga, gjörsamlega óverjandi fyrir markvörðinn. Eftir þetta sóttu Guðrúnarmenn svo látlaust en urðu í staðinn pínu værukærir í vörninni. Það var einmitt nettur misskilningur í vörninni sem skóp eina mark Ísbjarnarins þegar laflaus bolti lekur á milli varnarmanna, beint í fætur eins Ísbirningsins sem var þá kominn einn í gegn og átti ekki í vandræðum með að skora. En Guðrúnarmenn efldust bara við þetta og strax í næstu sókn fær Laddi boltann eftir hreinsun Ísbjarnasins og sendir hárfínan bolta beint í bringuhæð á Jóa sem stýrði honum með kassanum í netið. Stórglæsilega gert. Það var svo að lokum Baldvin sem setti punktinn yfir k-ið með fínum einleik upp vinstri kantinn sem hann svo lauk með marki uppá eigin spýtur. Lokatölur 6-1 og sigurinn hefði allt eins getað verið stærri.
Maður leiksins: Dagur, sem stjórnaði liðinu eins og herforingi í fjarveru Ingva og Eika auk þess sem hann setti tvö glæsileg mörk! :)
Jæja...
Það er orðið ansi langt síðan maður hefur þurft að skrifa pistil eftir 'tapleik' (þó svo við höfum í raun ekki tapað) en stundum falla hlutirnir bara ekki fyrir manni. Getum endalaust spurt okkur sjálfa hvað hafi klikkað, var það uppstillingin, var það markvörðurinn, var það dómarinn, boltinn eða jafnvel andstæðingurinn. Sjálfur vil ég meina að þetta hafi verið gamla góða vanmatið sem hafi farið svona illa með menn og það að ólíkt leikjum fyrr í sumar þá létu menn mótlætið fara í skapið á sér í staðinn fyrir að eflast og blása til sóknar...
Að vísu fengum við aragrúa af tækifærum strax frá fyrstu mínútu en inn vildi tuðran bara ekki. Það voru svo varnarmistök hjá varnartröllinu Ladda sem leiddi til fyrsta marks leiksins fyrir Heitu Strákana enda vörnin alveg úti á túni lengst af í leiknum. Ekki hjálpaði þetta mikið til við að róa taugar Guðrúnarmanna fyrir framan markið og þegar blásið var til leikhlés var staðan 0-1 Dönunum í vil...
Eftir hléð var það sama uppi á teningnum, mikið af færum en lítið um að menn næðu að klára þau. Að lokum varð þó eitthvað undan að láta og Pétur jafnaði leikinn eftir gott samspil við Jóa. Reynir bætti svo strax við öðru marki eftir horn og svo átti Eiki góðan sprett upp völlinn, sendi á Jóa og fékk hann aftur og kom stöðunni í 3-1. Hér hefði leikurinn í raun átt að vera búinn en menn misstu einbeitinguna og Danirnir minnkuðu muninn í 3-2 eftir horn þar sem dekkningin var ekki upp á marga fiska. Rétt fyrir leikslok ná Danirnir svo að jafna leikinn, enn eftir varnarmistök og þar við sat þrátt fyrir tvo stangarskot Guðrúnarmanna úr aukaspyrnum fyrir utan öll hin dauðafærin sem fóru forgörðum...
En við hengjum að sjálfsögðu ekki haus þrátt fyrir smá bakslag í langa og farsæla sigurgöngu. Eins og sagt er, því fleiri sigurleikir, því styttra er í 'tapið' og ég vona að það hafi verið í dag og menn mæti svo bara kolbrjálaðir í næsta leik og klári hann með stæl. Fall er nefnilega yfirleitt fararheill...
Menn leiksins: Laddi og Baldvin sem sammæltust um það eftir leikinn að taka á sig 'tapið', voru annars ótrúlega slakir...
Um miðjan dag í gær var haldið í leiðangur upp í Norðurbrú til að etja þar kappi við Knattspyrnufélagið Skaða. Menn voru auðvitað frekar smeykir að þurfa að fara í ghettó-ið þar sem á öllu er von en létu sig auðvitað hafa það enda með víkingablóð í æðum. Eftir að menn höfðu klætt sig í gallann stjórnaði Ingvi fyrirliði upphitun af sinni alkunnu snilld og sjóðandi heitir leikmenn Guðrúnar voru meira en klárir þegar dómarinn flautaði leikinn í gang...
Að vanda voru liðin að þreifa fyrir sér í byrjun leiks. Bæði lið voru hættuleg fram á við, Guðrúnarmenn þó ívið hættulegri án þess þó að ná að skora mark. Góðar markvörslur frá markvörðum beggja liða komu í veg fyrir það. Skaðamenn voru líka fljótir á ákveðnir í öllum sínum aðgerðum og mátti sterk vörn Guðrúnarmanna hafa sig alla við til að stoppa þá. Egill tók svo það sem slapp í gegn í markinu. En eins og svo oft áður þá varð eitthvað undan að láta. Guðrúnarmenn unnu horn sem Jói sendi fast inn í teiginn, Ingvi var klókur og lét boltann fara í gegnum klofið á sér og gabbaði þar með alla vörnina, boltinn rann áfram þvert yfir teiginn fyrir markið og þar var Holm mættur og skoraði laglega fyrsta mark leiksins. Vel að verki staðið og verðskuldað miðað við gang leiksins. Stuttu síðar komust svo Skaðamenn í hraða sókn og Gummi Þór gerði rétt í því að stoppa hana en uppskar þó gult spjald fyrir. Guðrúnarmenn voru því manni færri það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en voru duglegir að loka á allar aðgerðir Skaðamanna. Staðan 1-0 í hálfleik...
Skammt var liðið á seinni hálfleik þegar Guðrúnarmenn fengu sjöunda manninn inná aftur og þá var ákveðið að skipta um gír, sem þeir gerðu svo um munaði. Eftir góða sendingu inn í teiginn tók Eiki við boltanum, náði hann skoti á markið en markvörður Skaðans varði. Það vildi þó ekki betur til en svo að boltinn barst til Dags sem tróð honum í netið og jók forskotið í 2-0. Virtist þetta fara mjög í taugarnar á Dönunum sem fóru nú að spila heldur fastar og af meiri hörku. Eftir brot á Holm sem þeir mótmæltu duglega þá sendi Holm boltann yfir vörnina sem var enn að mótmæla, beint á Jóa sem átti ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið og stöðunni í 3-0. Stuttu síðar kemur svo góður bolti inn í teiginn sem Skaðamenn ná að hreinsa út en þar var Ingvi Vidic mættur, sendi á Dag sem kom boltanum áfram á Eika sem skoraði eftir smá klafs í teignum. Dagur átti svo síðasta orðið með bylmingsskoti eftir flotta sendingu frá Holm, 5-0 og leikurinn búinn...
Menn leiksins: Egill, varði eins og selur, Laddi, fyrir gott hnébrot, og auðvitað nágranninn fyrir gott gras...
Það var brakandi blíða í dag þegar vaskir sveinar IF Guðrúnar lögðu í langferð norður á bóginn að finna þar sveitaþorp er við Birkirauðan er kennt. Eftir smá útúrdúra og áttavillu (vorum samt eiginlega bara fimm villtir) þá fannst leikstaðurinn að lokum, menn gölluðu sig upp og gerðu sig klára í leik með nokkrum vel völdum súkkulaðibitakökum í boði Ladda varnartrölls. Völlurinn var eins og þeir gerast bestir, vel grasi vaxinn og mátulega blautur, nákvæmlega eins og við viljum hafa það... ;)
Það gekk erfiðlega að finna netmöskvana í upphafi leiks. Fjölmörg góð færi fóru forgörðum og á móti skall oft hurð nærri hælum við íslenska markið. Bjarkarauðir áttu t.a.m. skot sem Ingvi varði í stöng og stuttu hörkuskalla í slánna út. Það vildi þó ekki betur til en svo að beint eftir þennan sláarskalla brunuðu Guðrúnarmenn í sókn þar sem Jói Ben átti snilldar sendingu á Pétur sem skoraði fyrsta mark leiksins. Glæsilega að verki staðið, sérstaklega þar sem Pétur hefur verið týndur síðan í júní en fannst við fornleifauppgröft á Vesterbro í gærkvöldi. En Adam var ekki lengi í paradís því að fljótlega eftir það náði Danirnir að jafna metin eftir sjaldséð varnarmistök. Þannig stóðu svo leikar í hálfleik...
Í seinni hálfleik var liðinu stokkað upp, varnartröllið Laddi skipti við Reyni og fór á miðjuna og við það komust Guðrúnarmenn loksins í gang. Hann var einmitt upphafsmaður annars marks Guðrúnarmanna þegar hann sendi laglega sendingu á Jóa Ben sem trítlaði í gegnum vörn andstæðinganna og skoraði glæsilega eftir stoðsendingu frá sjálfum sér. Stuttu síðar var Jói svo aftur að verki en gaf í þetta sinn á Pétur sem þakkaði pent fyrir sig með sínu öðru marki. Við þetta brotnuðu Danirnir algjörlega og Guðrúnarmenn gengu á lagið. Baldvin setti fjórða markið eftir sendingu frá Jóa Ben (auðvitað). Stuttu síðar skoraði svo Pétur enn og aftur og fullkomnaði þrennuna, enn og aftur var Jói Ben með stoðsendinguna. Að lokum fékk svo Reynir boltann frá Jóa Ben og þrumaði boltanum af offorsi í netið og kom stöðunni í 6-1. Í millitíðinni reyndu Danirnir að efna til slagsmála við mikinn fögnuð áhorfenda en vaskur dómarinn stoppaði allt slíkt í fæðingu. Hann átti svo lokaorðið með því að blása til leiksloka. Góður útisigur á botnliðinu staðreynd eftir skemmtilega vegaferð norður í land. Heppilega þurfum við þó ekki að taka okkur á hendur slíkt ferðalag aftur í bráð... ;)
Maður leiksins: Jói Ben með sex stoðsendingar og eitt mark, geri aðrir betur! :D
Jæja, deildin fór aftur af stað síðasta þriðjudag með stórleik Guðrúnar og FC P-StarZ (sem eru einhverjir sveittir Danir) á heimavelli þeirra fyrrnefndu í Valby. Kick-off var stundvíslega 18:25 og þá var þunnt en vel skipaður hópur Guðrúnar funheitur og tilbúinn, eftir fríska upphitun, til að takast á við verkefnið. Strax í upphafi leik sá í hvað stefndi, Guðrúnarmenn voru miklu frískari, meira með boltann og mun hættulegri. Danirnir voru þó ekki alveg vonlausir, áttu sín fær en stórkostleg frammistaða Holms, sem bauð sig óeigingjarnt fram í markið í fjarveru Egils, kom í veg fyrir að þeim tækist að skora eitt einasta mark...
Eftir um fimm mínútna leik var mikill barningur inni í teig P-StarZ, boltinn barst svo út úr teignum þar sem varnartröllið Laddi var mættur og með bylmingsskoti tókst honum að skora glæsilegt mark, stöngin inn! Stuttu síðar vann svo Eiki boltann eftir útspark Dananna, sendi á Jóa sem lék á varnarmann og sendi aftur á Eika sem nú var kominn einn á móti marki og átti ekki í nokkrum einustu vandræðum með að koma tuðrunni í netið. Í stöðunni 2-0 var svo haldið í leikhlé...
Eftir hléð sóttu Danirnir í sig veðrið en eins og áður sagði áttu þeir ekki erindi sem erfiði sökum frábærrar frammistöðu Holms, meira að segja Danirnir sjálfur voru farnir að tala um hvað hann væri nú helvíti góður á milli stanganna. Hann var einmitt upphafsmaður þriðja marksins þegar hann greip horn sem Danirnir tóku, þrumaði boltanum fram á Jóa Ben sem lék á varnarmann og sendi fyrir. Þar var mættur enginn annar en Ingvi fyrirliði sem skoraði auðveldlega þriðja mark Guðrúnar. Stuttu síðar fékk svo Baldvin tækifæri sem hann nýtti vel og skoraði fjórða markið. Smiðshöggið rak svo Jói sem fékk fína sendingu frá Eika, lék á varnarmann og setti boltann laglega fram hjá markverði Dananna, staðan orðin fimm núll og stuttu síðar blés góður dómari leiksins hann af. Glæsileg spilamennska á köflum þar sem allir stóðu sína vakt með stakri prýði, gefur altént góð fyrirheit um framhaldið...
Maður leiksins: Gummi Holm, engin spurning... :)